Neyðarþjónusta allan sólarhringinn vegna leka: 896 1639
sigurjonpipari@gmail.comFlugumýri 24-26, 270 Mosfellsbær
Löggiltur pípulagningameistari · Mosfellsbær

Alhliða pípulagninga­þjónusta

Við sinnum almennum pípulögnum, viðhaldi, breytingum og endurnýjun lagna fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki, með sérhæfingu í skólp- og drenlögnum.

  • Neyðarþjónusta allan sólarhringinn
  • Föst verðtilboð í stærri verk
  • Allt frá upphafi til enda
KALTHEITT
Hvar þarftu pípara?

Smelltu á staðinn þar sem vandinn er

Frá baðherberginu niður í dren og út í götu. Veldu stað á húsinu og sjáðu hvaða þjónusta á við og hvernig við leysum málið.

KJALLARIGATASNJÓBRÆÐSLASKÓLPDREN1234567
Pípulagnir

Baðherbergi og blöndunartæki

Endurnýjun baðherbergja, uppsetning blöndunartækja, útskipti á gömlum lögnum og breytingar á lögnum innanhúss. Við mætum með tilskilin réttindi og mikla fagþekkingu.

Bíll Sigurjóns pípara
Reynsla og fagmennska

Persónuleg og áreiðanleg þjónusta

Sigurjón pípari ehf. var stofnað af Sigurjóni Jónssyni, löggiltum pípulagningameistara. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur fagmanna sem sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.

  • Verkefni af öllum stærðum, frá viðhaldi og viðgerðum til endurnýjunar lagna
  • Vönduð vinnubrögð, snyrtilegur frágangur og hagkvæmar lausnir
  • Föst verðtilboð í stærri verk sé þess óskað
Meira um okkur
Sérhæfing

Skólp- og drenlagnir frá upphafi til enda

Eldri lagnir geta með tímanum skemmst, sigið eða stíflast og valdið raka, leka eða öðru tjóni ef ekki er brugðist við. Við erum með allan nauðsynlegan tækjabúnað og sjáum um verkið allt frá undirbúningi og jarðvinnu til lagningar og frágangs, án þess að kalla þurfi til marga mismunandi verktaka.

Skólp- og drenlagnir
Lagnaskurður með nýjum lögnum
1

Ráðgjöf og mat

Faglegt mat á ástandi lagna. Það borgar sig að láta mynda og yfirfara skólp tímanlega.

2

Undirbúningur og jarðvinna

Okkar vélar og mannskapur, þannig að rask á lóð verði eins lítið og mögulegt er.

3

Lagning

Nýjar skólp- og drenlagnir, kjarnaborun og tengingar við inntak.

4

Frágangur

Varanlegur og snyrtilegur frágangur. Allt hjá einum og sama aðila.

Fyrir og eftir

Baðherbergi endurnýjað í hólf og gólf

Dragðu sleðann til að sjá muninn.

Við tökum að okkur algjöra endurnýjun baðherbergja: rífum út, setjum klósettgrind inn í vegg, fræsum í gólf fyrir gólfhita og sögum fyrir hallandi gólf í sturtu.

Skoða verkefni
Baðherbergi eftir endurnýjun
Baðherbergi fyrir endurnýjun
FyrirEftir
Verkefni

Nýleg verkefni

Öll verkefni
Verðskrá

Gagnsæ verðlagning

Minni verkefni eru yfirleitt unnin í tímavinnu en fyrir stærri framkvæmdir er hægt að óska eftir kostnaðarmati eða föstu verðtilboði.

Reikna kostnaðaráætlun
Pípulagningameistariá klst
18.352 kr.með vsk
Útkall í dagvinnu2 tímar innifaldir
55.800 kr.með vsk
Skoðunargjald fyrir tilboðsgerðfellur niður ef tilboði er tekið
18.600 kr.með vsk

Er kominn tími á endurnýjun eða vantar þig aðstoð?

Sendu okkur fyrirspurn eða verkbeiðni með upplýsingum um verkefnið og við höfum samband eins fljótt og kostur er.

Samstarfsaðilar

VatnsvirkinnTengiMHGHilti