Neyðarþjónusta allan sólarhringinn vegna leka: 896 1639
sigurjonpipari@gmail.comFlugumýri 24-26, 270 Mosfellsbær
Forsíða/ Um okkur
Um okkur

Sigurjón pípari ehf.

Stofnað af Sigurjóni Jónssyni, löggiltum pípulagningameistara. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur fagmanna með reynslu af fjölbreyttum verkefnum á sviði pípulagna.

Hver við erum

Persónuleg þjónusta fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki

Við bjóðum persónulega og áreiðanlega þjónustu og tökum að okkur verkefni af öllum stærðum.

Þjónustan nær meðal annars til almenns viðhalds og viðgerða, breytinga og endurnýjunar lagna, endurnýjunar baðherbergja, kjarnaborunar, gólfhitakerfa og snjóbræðslukerfa.

Löggiltur meistariSigurjón Jónsson pípulagningameistari
Allan sólarhringinnNeyðarþjónusta vegna leka
Föst verðtilboðÍ stærri verk sé þess óskað
Jarðvinna við hús vegna endurnýjunar lagna
Okkar áherslur

Vönduð vinnubrögð frá fyrsta degi

Fagleg vinnubrögð

Við tökum að okkur verkefni af öllum stærðum og leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og lausnir sem henta hverju verkefni.

Snyrtilegur frágangur

Vandaður frágangur skiptir máli, hvort sem um er að ræða baðherbergi, lagnakerfi eða lóð eftir jarðvinnu.

Hagkvæmar lausnir

Heildstæð lausn hjá einum aðila, án þess að kalla þurfi til marga mismunandi verktaka. Föst verðtilboð sé þess óskað.

Nýjar lagnir í skurði
Sérhæfing

Endurnýjun skólp- og drenlagna

Við höfum mikla reynslu af lagningu og endurnýjun skólp- og drenlagna. Eldri lagnir geta með tímanum skemmst, sigið eða stíflast og valdið raka, leka eða öðru tjóni ef ekki er brugðist við.

Við erum með nauðsynlegan tækjabúnað til að sjá um slík verkefni frá upphafi til enda, allt frá undirbúningi og jarðvinnu til lagningar og frágangs. Þannig getum við boðið heildstæða og hagkvæma lausn.

Skólp- og drenlagnir

Samstarfsaðilar

VatnsvirkinnTengiMHGHilti

Við finnum lausn sem hentar þínu verkefni

Sendu okkur fyrirspurn eða verkbeiðni með upplýsingum um verkefnið og við höfum samband eins fljótt og kostur er.