Neyðarþjónusta allan sólarhringinn vegna leka: 896 1639
sigurjonpipari@gmail.comFlugumýri 24-26, 270 Mosfellsbær
Forsíða/ Þjónusta/ Snjóbræðslu- og gólfhitakerfi
Snjóbræðslu- og gólfhitakerfi

Snjóbræðslu- og gólfhitakerfi

Gott gólfhita- eða snjóbræðslukerfi er gulls ígildi yfir köldustu mánuði ársins. Við höfum mikla reynslu af því að hanna og leggja lagnir sem bræða snjó og klaka af innkeyrslum, tröppum og gangstéttum. Slík kerfi stórauka öryggi og spara ómældan tíma í snjómokstur. Við sjáum um að frágangur á öllum stýringum og lögnum sé til fyrirmyndar.

  • Innkeyrslur, tröppur og stéttar
  • Gólfhiti
  • Stýringar og stjórnbúnaður
  • Frárennsli bræðsluvatns
01

Lagnir sem auka öryggi

Við vinnum með sterk og endingargóð rör sem þola vel frost og álagið sem fylgir íslenskri veðráttu. Þegar lagt er nýtt kerfi fyrir innkeyrslu skiptir vandaður undirbúningur höfuðmáli. Við aðstoðum við val á réttu efnunum og tryggjum að hringrás kerfisins sé rétt stillt fyrir hámarksafköst og orkusparnað.

02

Gott frárennsli er lykilatriði

Þegar snjór bráðnar þarf vatnið að komast eitthvert. Því er mikilvægt að stýra bræðsluvatninu burt með réttum frárennslislögnum. Oft er tilvalið að huga að snjóbræðslu um leið og farið er í endurnýjun drenlagna eða skólps, þar sem hægt er að sameina jarðvinnu.

03

Neyðarþjónusta við lagnir

Þótt snjóbræðslukerfi séu hönnuð til að þola mikið álag geta rör frosið, sprungið eða lekið ef kerfið bilar. Ef vatn eða frostlögur fer að leka úr hitakerfum eða öðrum lögnum mætum við fljótt á svæðið.

Er kominn tími á endurnýjun eða vantar þig aðstoð?

Sendu okkur fyrirspurn eða verkbeiðni með upplýsingum um verkefnið og við höfum samband eins fljótt og kostur er.